Hjólaði samtals 207 km í mánuðinum þar af 163 til og frá vinnu. Hjólaði 20 af 23 vinnudögum mánaðarins. Einn dag var veðurspáin það leiðinlega að ég ákvað að labba frekar og svo sprakk á afturdekkinu og það tók 2 daga að fá það lagað. Fékk nýtt afturdekk því skv. verkstæðinu voru naglarnir farnir að stingast inn í dekkið og það sprengdi slönguna.
Sá að meðaltali (á dag þá daga sem ég hjólaði til vinnu): 5 á hjóli, 1 á hlaupahjóli og 11 gangandi.
Fjóldamet hjólandi í mánuðinum er 10 á en fæst sá ég 1.
Heildar talning í mánuðinum var: 100 á hjóli, 12 á hlaupahjóli og 215 gangandi.
Nú er allur snjór farinn og færðin orðin töluvert léttari.
1. mars var ég rúmar 30 mínútur á leið til vinnu. Meðalhraðinn 8,7 km/klst. Þetta var ansi slæmur dagur og færðin mjög leiðinleg.
31. mars var ég rétt rúmar 15 mín. Meðalhraðinn 17,5 km klst.
Fór tvær ferðir á stóra-hjólinu. Fyrstu ferðirnar á þessu ári. Það er alveg jafn gaman að hjóla í því í ár og á síðasta ári. Seinni ferðin var farin til að sækja ömmubarn á leikskólann og það var ennþá skemmtilegra að hjóla með farþegann.
Svona lítur hitakortið út það sem af er þessu ári:
Engin ummæli:
Skrifa ummæli