Keyptum okkur Playstation tölvu fyrir jól og leikurinn Buzz fylgdi með í kaupbæti. Þetta væri ekki fréttnæmt nema af því að Elías svoleiðis burstar okkur stelpurnar alltaf í þessum leik (tel of mikinn sálmasöng hafa truflað getu mína á þessu tónlistarsviði). Það er helst að Hrund og Eyrún hafi eitthvað í hann þegar eingöngu er farið í nýlega tónlist. Við getum illa sætt okkur við þetta og kallinn er að verða helst til of ánægður með sig, svo okkur bráðvantar einhvern til að veita honum samkeppni. Helst horfi ég til bræðra minna sérstaklega þeirra yngir þar sem þeir telja sig tónlistarlega þenkjandi (Þórhallur prúf mí rong). Legg til að sett verði upp keppni um páskana til að koma Elíasi niður á jörðina aftur.
Svo setjið ykkur í stellingar bræður ég treysti á ykkur!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Hjólaárið 2023 - 3.036 km
VEGALENGDIR OG DAGAFJÖLDI Hjólaði samtals 3.036 km á árinu. Hjólaði 1.589 km til og frá vinnu og 1.447 km í aðrar ferðir. Ég hjólaði 203 af ...
-
Hjólaði samtals 300 km í mánuðinum þar af 132 til og frá vinnu. Hjólaði 15 af 17 vinnudögum mánaðarins til vinnu, var 5 daga í orlofi. Hjó...
-
Mig hefur lengi langað til að prófa að þæfa ull og lét þann draum rætast þessa helgi. Ég átti plötulopa og notaði stærstu prjónana sem ég á....
-
Það hefur lengi verið á óskalistanum hjá mér að hjóla að álverinu í Straumsvík og í dag lét ég loksins verða af því. Veðrið var mjög fínt t...
4 ummæli:
Bring it on!
Elías.
Já ég er til í að prófa, en ég myndi halda ef það virkar ekki þá er ég með mann sem gæti skákað honum Elíasi, þá er ekki átt við Reyni Eurovision homma Stein Skaptason eða Dr. Gunna, heldur INGA TANDRA TRAUSTASON!!! Það er maður sem af einhverjum orsökum eða afleiðingum leggur allt á minnið sem við kemur tónlist og fótbolta, hann man t.d. heilu og hálfu sóknirnar úr fótboltaleikjum, ekki að það hafi verið skorað úr þeim sóknum heldur bara hornspyrnan sem fékkst upp úr þessari sókn eða eitthvað álíka...
Tjahh þó svo að hér hafi verið harkalega að mér vegið þá er ég vel til í að prófa þetta eins og eina kvöldstund.
Já ég tapa alltaf í buzz það er svo pirrandi og ég vil einhvern tíman vinna pabba ég get bara skammað hann fyrir að vinna alltaf.!!!!!!
Skrifa ummæli