En svona geta hlutrnir breyst. Það var þannig að við pabbi vorum að ræða bókalestur snemma á þessu ári og ég sagði honum frá því að ég gæti bara ekki lesið verk eftir Halldór. Jú ég hefði farið í gegnum Íslandsklukkuna í skóla en ekki skilið hana. Svo hafi ég 2x reynt að lesa Kristnihald undir jökli en í bæði skiftin gefist upp komin inn í hálfa bók. Þess vegna var ég búin að ákveða að þetta væru bara ekki bókmenntir fyrir mig. Pabba fannst þetta ekki hægt þar sem hann heldur mikið upp á nóbelskáldið og lánaði mér Innansveitarkronikuna sem hann sagði vera fínustu bók og góð fyrir byrjendur. Ég fékk bókina lánaða svona meira til að gleðja föður minn en af löngun til að lesa. Síðan hefur bókin fengið að liggja í bókabunka í gluggakistunni hjá mér.
En þar kom að því að mig vantaði bók að lesa úti í sólinni og þá greip ég Innansveitarkronikuna. Ég gerði mér ekki miklar vonir og ekki byrjaði það vel því ég misskildi fyrstu setninguna og varð að lesa hana aftur til að skilja. Hún er svona:
"Þegar þjóðhetja Íslands og höfuðskáld Egill Skallagrímsson hafði um skeið bygt haug sinn í Mosfellsdal nær þjóðbraut þar sem heitir í Tjaldanesi af því ferðamenn tjalda þar, þá kom kristni í landið."
Það var þetta orðala að byggja haug sem tók tíma að átta sig á. Ég sá manninn fyrir mér puða við að byggja eitthvað en í stað þess lá hann dauður og heygður.
Eftir að hafa komist yfir þessa fyrstu hindrun átti ég barasta erfitt með að leggja bókina frá mér. Og það kom mér verulega á óvart að upplifa það um kvöldið þegar ég las fyrir svefninn að ég fór út í að lesa "bara einn kafla í viðbót" eins og maður gerir stundum með bækur sem fanga mann og les þá aðeins of lengi.
Líklegast hef ég hingað til ekki haft þroskann til að skilja skrifin hjá Halldóri.
Svo er hér ein setning úr bókinni sem mig langar að setja hér inn því hún er snilld:
"Því hefur verið haldið fram að íslendingar beygi sig lítt fyrri skynsamlegum rökum, fjármunarökum varla heldur, og þó enn síður fyrir rökum trúarinnar, en leysi vandræði sín með því að stunda orðhengilshátt og deila um titlíngaskít sem ekki kemur málinu við; en verði skelfíngu lostnir og setji hljóða hvenær sem komið er að kjarna máls."
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Hjólaárið 2023 - 3.036 km
VEGALENGDIR OG DAGAFJÖLDI Hjólaði samtals 3.036 km á árinu. Hjólaði 1.589 km til og frá vinnu og 1.447 km í aðrar ferðir. Ég hjólaði 203 af ...
-
Var aðeins að skoða mig aftur í tímann og rakst þá á þessa mynd af nóvember kaktusinum í vinnunni hjá mér en hún er tekin árið 2010. Fyr...
-
Hjólaði samtals 231 km í mánuðinum þar af 113 til og frá vinnu. Tók mér 3 orlofsdaga í mánuðinum og var veik 2. Hjólaði 49 km á stóra hjól...
-
Mig hefur lengi langað til að prófa að þæfa ull og lét þann draum rætast þessa helgi. Ég átti plötulopa og notaði stærstu prjónana sem ég á....
1 ummæli:
Skemmtilegt þetta Bjarney. Halldór hefur verið skemmtilegur rithöfundur, ég hef lesið margar bóka hans mér til ánægju og upplyftinar. Hann þótti afar skemmtilegur hér áður fyrr og mér fannst mjög gaman að bókum hans.
Seinasta innskotið sem þú settir inn er mjög gott og hittir beint í mark. Það sýnir sig nú þegar stjórnmálamenn reyna að forðast umræðuna um inngöngu í Evrópubandalagið. Forðast að taka umræðuna, heldur vilja bara loka á. Það er mjög íslenskt.
Skrifa ummæli