Hjólaði samtals 196 km í mánuðinum þar af 155 til og frá vinnu. Hjólaði næstum alla vinnudaga mánaðarins í vinnu en ég labbaði einu sinni út af veðurspá.
Hjólaði 49 km á stóra hjólinu sem er með rafmótor og 147 á venjulega hjólinu.
Sá að meðaltali (á dag þá daga sem ég hjólaði til vinnu): 5 á hjóli, 1 á hlaupahjóli/rafskútu og 10 gangandi.
Einn dag sá ég engan annan á hjóli og mest sá ég 9 aðra á hjóli.
Allt mjög svipaðar tölur og í janúar.
Myndir mánaðarins. Fyrri hluti mánaðarins var vetrarlegur en svo fór að minnka snjórinn og hlýna og síðustu dagrnir voru með hitastig upp á 7°C og alveg snjólaust.
Snjórinn og slabbið loddi við hjólið:
Þennan daginn labbaði ég í vinnuna:
Heppin á heimleið að lenda fyrir aftan moksturstækið:
Það lítur kannski ekki út fyrir það, en hérna var fínt að hjóla. Myndi segja ekki allt. Þessi snjór var vel þjappaður og ekki búið að salta ofan í hann svo hjólið var stöðugt og fínt.
Vel hreinsaður og saltaður stígur.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli