Var að taka eftir því að það er komið gat á bestu og svo til einu buxurnar mínar.
Ónei það táknar aðeins eitt, að ég verð að fara í búð og finna mér nýjar buxur.
Arghh!
Veit fátt leiðinlegra eða erfiðara verkefni. Einu sinni var það þannig að ég átti í mesta basli með að finna buxur sem væru nógu síðar en mátulegar í mittið (þ.e. ekki of víðar). Nú hefur þetta snúist við. Það er í sjálfu sér ekki erfitt að finna nógu síðar buxur lengur, en þær vilja vera helst til of þröngar í mittið.
2 ummæli:
Það verður seint talið ókostur ef buxurnar stramma aðeins yfir botninn systir góð.
Aldrei ánægð!! : )
Skrifa ummæli