5. maí 2014

Breyting á viðmóti þeirra sem aka bíl.

Ég er sem sagt komin á nýtt hjól sem er einstaklega fallegt og dömulegt.  Var áður á einhverskonar fjallahjóli (sjá myndir).  Mér fannst menn (karlar og konur) almennt kurteisir gagnvart mér í umferðinni og stoppa til að hleypa mér yfir götur o.þ.h.  En núna á nýja hjólinu finn ég að það var ekki neitt neitt, núna stoppa menn undantekningalítið og gefa mér meira pláss ef eitthvað er.  Enn er ég í sömu fötunum og áður og tel mig hjóla mjög svipað og áður svo eina breytingin hjá mér er hjólið sjálft.  Það er ótrúlegt að upplifa þetta.




Engin ummæli:

Hjólaárið 2023 - 3.036 km

VEGALENGDIR OG DAGAFJÖLDI Hjólaði samtals 3.036 km á árinu. Hjólaði 1.589 km til og frá vinnu og 1.447 km í aðrar ferðir. Ég hjólaði 203 af ...