Fann þessi skrif í gegnum Hjóladagblaðið (http://paper.li/Hjolreidar/1328468294) og hann segir einmitt það sem ég hef verið að hugsa.
Titill skrifanna er: "So I don't wear a helmet. Get off my ass"
Leyfði mér að afrita textann og setja hér inn en þetta er slóðin á upprunalegu skrifin http://georgehahn.com/2013/05/30/so-i-dont-wear-a-helmet-get-off-my-ass/
When I’m with my bike, “Where’s your helmet?!” is a real popular question from just about anybody who feels entitled to exercise passive-aggressive judgment in question form. Thankfully, I don’t feel the gall to ask total strangers “Do you really need another martini?”, “How about salad instead of fries?” or “Are you sure about the tank top?” – even after it’s clearly too late.
When I was a kid growing up in the ’70s and ’80s in Lakewood, Ohio, a suburb of Cleveland, riding a bike was fun, not serious. In our early years, we rode upright on Huffy Dragsters and dirt bikes, doing fast turns, going down hills and catching air on crude homemade ramps on the driveway. And sometimes we fell. When we fell, whether sideways or front-ways, our hands met the ground. We didn’t wear special bicycling clothes, and none of us wore helmets.
I was the youngest of five when I learned to ride a bike in the mid ’70s. My oldest sibling, my sister Tracy, had an upright Schwinn. Between her bike, my bike, my other siblings’ bikes in the garage and most of the other bikes in the neighborhood, the mode of cycling was upright. Still no special cycling clothes, still no helmets.
Then, in 1979, a hit movie called Breaking Away came out. Suddenly, all across America, recreational cyclists wanted to be like the Americans in the movie, who wanted to be like the Italians in the movie: a rendition of pro racers hunched over ten-speeds. In the hunched-over position, riders weren’t looking around anymore. They were now face-down, limiting their periphery to forward and down, putting every other direction in a blind spot. In those pre-Armstrong days, the racer model that was spreading like the flu had amateur riders flirting with speeds that only seasoned professionals should reach in a controlled environment – not an environment shared with cars or pedestrians.
Upright Dutch-model bikes started to become passé, written off as uncool, old lady, Wicked Witch of the West bikes. The newly popular model, the racer model, started to permeate the culture, becoming what Americans think cycling meant: cycling meant racing, or some derivative thereof. Out of necessity and with thanks to the racing influence, helmets entered the scene because cycling started to become dangerous, literally.
Enter the Armstrong Effect…
From the time Lance Armstrong took his first major victory in the early ’90s, cycling culture in America has been dominated by racing. Drunk on it, actually. Not only does everyone suddenly need a helmet, but we also need specialized gear and tight Lycra clothes with taint padding. The bikes themselves are razor-thin, feather-light contraptions, helping the non-professional rider go even faster. It’s all about the extreme… extreme lightweight, extreme racing, extreme speed, extreme tension on the face of the rider. And apparently extremely dangerous all of a sudden.
Then there’s the phenomenon known as “risk compensation.” Grant Petersen explains it perfectly in his book Just Ride, but I’ll try to summarize it here. Risk compensation is a psychological phenomenon that consciously or subconsciously affects our behavior when we wear protective equipment during a perceived dangerous activity. In football pads and helmets, kevlar vests, snake boots and, yes, bike helmets, we behave differently – with an increased sense of invincibility or recklessness, as if the protective gear is some kind of insurance against misfortune. As someone who was once a helmeted practitioner of the racer model and now an unhelmeted practitioner of the upright Dutch model, I can ascertain that there is a remarkable difference in how I ride.
If wearing a helmet makes one feel safer and more secure on a bicycle, then by all means wear one. And if one is training for a triathlon or an iron man, by all means wear one. (Just keep the speed entitlement out of the crowded metropolis shared by cars, pedestrians, children, dogs and other bicyclists.)
The data on the safety and reliability of bike helmets is a conflicted mixed bag. One statistic in which I’d be particularly interested is one that shows a breakdown in bicycle head injuries based on the type of cycling that was practiced: Of all bicycle head injuries, I’d love to know the percentage of victims who practiced the racer/messenger/daredevil model as opposed to the slower, upright, Dutch model. Unfortunately, I don’t think it’s a statistic we’ll ever know, but I think the distinction is legitimate and important.
I’m not anti-helmet, but I am anti-propaganda when it comes to companies capitalizing on fear and the perpetuation that bicycling is or even should be perceived as a dangerous activity. Because it shouldn’t be. When it comes to enjoying a bicycle, I will leave the specialized gear, the specialized clothes, the specialized bikes and, yes, the helmet to those intoxicated by the Armstrong Effect. This recovered daredevil has retired into a sane, sober and civilized model of cycling, and I’m loving the ride, just like I did when I was a kid. Without the helmet.
31. maí 2013
28. maí 2013
"Hjólað eftir Sæbraut dagurinn"
Held að ég hafi misst af tilkynningu um "hjólað eftir Sæbraut morguninn" sem greinilega er í dag.
Sá hvorki fleiri né færri en 39 á hjóli í morgun og það er 44% aukning frá síðasta fjöldameti frá 14 . maí en þá sá ég 27.
Veðrið í morgun var yndislegt, bjart yfir, lítill vindur og hitastigið einhversstaðar á milli 5 og 10°C en svo hlýtt hefur ekki verið lengi að morgni til.
Svo er bara að sjá hvort þetta met verði slegið í ár þar sem að í dag er síðasti dagur átaksins "Hjólað í vinnuna". Ég hef ekki tekið þátt í þeirri keppni í nokkur ár þar sem vinnuaðstæður eru frekar óheppilegar (fer ekki nánar út í það). En það stoppar mig ekki frá því að hjóla og hafa gaman að sjá allan þann fjölda sem ákveður að nýta hjólið sem fararskjóta meðan átakið stendur yfir sem og aðra daga.
Taflan sýnir meðaltal þeirra sem ég sé á hjóli á leið minni til vinnu á morgnana. Þetta er eitthvað sem ég hef vanið mig á að telja og af því ég hef ótrúlega gaman að tölfræði þá fór ég að skrá þetta niður hjá mér. Ég litaði maí gulan af því þá er átakið í gangi og þá sést glögglega að það er mikil fjölgun hjólandi milli apríl og maí, sem dettur svo aðeins niður í júní en það er líka af því að menn eru farnir að fara í sumarfrí á þeim tíma. Ég leyfði maí tölunni fyrir 2013 að fljóta með þótt maí sé ekki liðinn (enn 3 virkir morgnar eftir) og talan gæti hugsanlega breyst.

14. maí 2013
Safnhaugur og maðkar
Mokaði milli hólfa í safnhaugnum um helgina. Þessi mynd (afsakið myndgæðin en það var að byrja að rigna og ég var að flýta mér) er tekin þegar ég er rétt ný byrjuð að moka úr yngsta hólfinu og þá kem ég niður á ormahrúgu. Þegar myndir er tekin hafa margir náð að láta sig hverfa, en þetta voru ótrúlega margir maðkar á einum stað.
6. maí 2013
Nagladekkin komin í sumarfrí.
Skipti yfir á sumardekkin laugardaginn 4. maí.
Fór svo í kvennasamhjól frá Erninum á vegum Hjólreiðafélags Reykjavíkur á sunnudag með dætrum mínum, móður og mágkonu. Veðrið var yndislegt, glampandi sól og ekki mikill vindur (þó hann væri napur þegar hann blés á móti). Um 120 konur tóku þátt og allt gekk að óskum, þó við hefðum reyndar næstum misst af hópnum snemma þá var seinnihlutinn, frá Hörpu (þar sem safnast var saman aftur) farinn meira í samfloti. Þá var búið að skipta hópnum upp í þær sem fóru lengri leiðina (26 km) og okkur sem fóru styttri vegalengd eða tæpa 19 km.
Það vildi svo skemmtilega til að hóparnir náðu saman alveg í lokin.

30. apríl 2013
Apríl 2013
Hjólaði samtals 294 km í mánuðinum, 190 km til og frá vinnu og 104 km í aðrar ferðir.
Fór 17 af 20 vinnudögum á hjólinu til vinnu og var í orlofi þessa 3 daga sem uppá vantar.
Sá að meðaltali 12 á hjóli á leið minni til vinnu. Mest voru það 17 og minnst 3 en þann dag var ansi hvass vindur.
Ég er enn á nagladekkjunum og enn á báðum áttum hvort það borgi sig að taka þau undan strax. Það er kalt og hætta á hálku, en hefur þó verið þurrt að mestu. Ætla að sjá til í nokkra daga í viðbót.

Garmin græjan mín hætti að virka í
mánuðinum og tókst ekki að koma henni í gang aftur svo ég er farin að
nota símann og forrit sem heitir endomondo til að halda utan um það sem ég hjóla.
Ég nota hjólið að mestu sem samgöngutæki. Það er helst á sumrin að ég fer í hjólatúra þar sem tilgangurinn er ekki aðallega fólginn í því að komast á ákveðinn stað á ákveðnum tíma. Enn eru "aðrar ferðri" hjá mér aðallega tengdar kórastarfi. Með batnandi færð, veðri og aukinni birtu þá hjóla ég frekar þangað sem ég þarf að komast og skil bílinn eftir heima.
Svo er hér smá samanburður milli mánaða og ára á fjölda hjólandi sem ég tel á leið minni til vinnu á morgnana.
Þessir fjórir mánuðir eru kannski ekki mjög samanburðurhæfir þar sem verðurfar er ansi misjafnt eftir árum. T.d. var janúar í fyrra (árið 2012) nokkuð snjóþungur og febrúar sama ár töluvert vindasamur. En veður mikið mildara í ár þó það hafi komið nokkrir hvellir. Á leið minni eftir stígnum við Sæbraut virðast vera ríkjandi áttir mér í vil, þ.e. ég er oft með meðvind á morgnana og líka á heimleiðinni. Þegar hingsvegar vindurinn er mjög kröftugur á móti mér þá vel ég að fara inn í hverfin og ef mér líst sérlega illa á veðrið fer ég meðfram Suðurlandsbrautinni, sú leið er stutt en ekki eins skemmtileg að hjóla eins og Sæbrautin að mínu mati.
Verið er að gera hjólastíg meðfram Suðurlandsbrautinni og fer þeim framkvæmdum vonandi að ljúka. Verður spennandi að sjá hvernig það kemur út.
26. apríl 2013
Síðasti vetrardagur - veðufar.
Hjólaði í vinnuna síðasta vetrardag (eins og flesta aðra daga). Þegar ég lagði af stað féllu eitt og eitt snjókorn af himni en það var svo lítið að ég ákvað að fara ekki í hlífðarbuxurnar (þær fengu að vera í körfunni). Ekki nema um 5 mín seinna hafi hressilega bætt í snjóinn og ég fór í buxurnar og kveikti blikkljósið aftan á hjólinu.. Nokkrum mínútum seinna var snjókoman orðin svo þétt að varla sást úr augum og ég endaði á því að taka ofan gleraugun því snjórinn settist jafnóðum á þau. Sem betur fer var næstum logn þennan dag. Fyrstu myndina tók vinkona mín á leið sinni til vinnu eftir Sæbraut.
Seinni myndin flakkaði um á Facebook. Því staðreyndin var sú að það snjóaði hressilega en bara rétt í um klukku stund og svo skipti algjörlega litum og sólin fór að skína.
Seinni myndin flakkaði um á Facebook. Því staðreyndin var sú að það snjóaði hressilega en bara rétt í um klukku stund og svo skipti algjörlega litum og sólin fór að skína.
Þegar ég hjólaði heim var varla nokkur snjór sjáanlegur og það litla sem var eftir hamaðist við að bráðna. Stígurinn leit úr eitthvað á þessa leið (mynd fengin af Facebook og er ekki af leiðinni sem ég hjólaði eftir).
6. apríl 2013
Ræktun
Alltaf finnst mér jafn dásamlegt og undursamlegt að sjá plöntu vaxa upp af fræi.
Þann 10 mars setti ég fræ í sáðmold. Þetta var blómkál, spergilkál, rófur og 4 tegundir af sumarblómum.
14. mars tek ég eftir því að sprotar eru farnir að gægjast upp úr moldinni og 17. mars tek ég þessa mynd.

23. mars (tveimur vikum eftir sáningu) dreifsetti ég kálið og eina tegund af sumarblómum. Bæði átti ég ekki meiri mold og svo var ekkert farið að spretta hjá tveimur tegundum af sumarblómum. Ég hreinlega hélt að það mundi ekkert spretta þar fyrst ekkert var komið en hélt þó áfram að vökva og halda í vonina.
Í dag (6. apríl) tók ég svo þessar myndir. Efst er kálið. Í miðjunni eru sumarblóm, þetta stóra er skjaldflétta sem er mjög svo fallegt blóm og neðst er meira kál og sumarblóm.
5. apríl 2013
Fleiri að hjóla í veðurblíðunni.
Veðrið hefur leikið við höfuðborgarbúa það sem af er apríl. Margir hafa dustað rykið af hjólunum sínum og það sést á talningatölunum mínum á leið til vinnu. Í mars var algengast að sjá 8 á hjóli á leið minni til vinnu eftir stígnum við Sæbraut. En það sem af er þessum mánuði (þessa 4 virku daga) hefur bæst við töluna á hverjum degi.
Á þriðjudag sá ég 8, á miðvikudag 12, í gær 15 og í morgun 17. Hvar endar þetta, maður bara spyr sig?
Þetta er mjög jákvætt og allir halda sig hægra megin. En það er kannski af því að þá er ég í víkjandi stöðu miðað við skiptinguna á hjólareininni (sem er þó óðum að hverfa).
Á heimleiðinni er þetta oft flóknara því þá eru fleiri á stígnum, á öllum aldri og fararmátinn fjölbreyttari. Og sumir hjólreiðamenn eiga það til að víkja ekki út af hjólaræmunni fyrr en í síðustu lög og þá er maður farin að velta því fyrir sér hvort viðkomandi hafi yfir höfuð komið auga á sig og ég er oft farin að undirbúa að fara út í grasið til að forða árekstri. Sem betur fer hefur ekki komið til þess enn.
Nú er ætlar borgin ekki að halda við þessum línum sem skipta stígnum í gangandi og hjólandi og ég veit af hverju það er og er sammála að þessi ræma hentar ekki þar sem hjól geta ekki mæst innan línunnar og þá er maður í raun að brjóta lög við að fara yfir heila línu þegar víkið er fyrir þeim sem koma á móti. En menn eru orðnir vanir þessari skiptingu og halda sig almennt réttu megin við strikið (sem var alls ekki raunin í upphafi því þá var mjög algengt að menn gengju á línunni sjálfri). Þannig að nú þegar línurnar eru að hverfa þá er komin upp óvissa. Margir ganga alltaf lengst til vinstri (hef velt fyrir mér hvort það sé af því að í gamla daga þá var manni kennt að ganga á móti umferð þar sem ekki eru gangstéttar) en ef svona blandaður stígur á að ganga upp þarf að vera hægri regla. Þ.e menn halda sig hægra megin og það er tekið framúr vinstramegin. Vonandi verður það þannig þegar til kemur.

3. apríl 2013
Gönguferð annan í páskum.
Um páskana afrekuðum við fjölskyldan (eða stór hluti af henni) að ganga ALLAN Langholtsveginn, frá Suðurlandsbraut að Sæbraut. Öll fjögur lögðum við af stað en misstum einn fjölskyldumeðliminnn frá okkur við Holtaveg, því var ekki við bjargandi. En við stelpurnar héldum ótrauðar áfram. Teljum við að þetta sé einstakt afrek sem ekki hefur áður verið skráð á spjöld sögunnar (svo vitað sé). Höfðum við bæði gott og gaman af göngutúrnum sem var allt í allt 5 km.
2. apríl 2013
Mars 2013
Hjólaði samtals 280 km í mánuðinum.
Fór 17 af 19 vinnudögum á hjólinu til vinnu. 2 daga skildi ég hjólið eftir heima vegna veðurs.
Sá að meðaltali 7 hvern dag á hjóli á leið minni til vinnu. Mest voru það 12 og minnst 1 en það var daginn eftir óveðrið.
Ég er enn á nagladekkjunum þó löngunin að taka þau undan sé orðin ansi sterk. Tel að það borgi sig ekki að taka þau undan strax þar sem apríl gætið komið með kulda og hálku og ég vil ekki þurfa að skilja hjólið eftir heima út af því. Þess vegna fá nagladekkin að vera undir hjólinu enn um sinn.

21. mars 2013
Samferða strætó
Augljóslega fer strætó meiri krókaleiðir en ég og þarf að stoppa oftar en þetta hefur ekki gerst áður og ég hafði gaman að því.
17. mars 2013
Met vika á hjólinu.
Runkeeper.com er svo duglegt að halda utan um alla mína hjólamennsku og er ekki síður duglegt að láta mig vita þegar ég bæti mig og geri eitthvað vel.
Þegar ég hlóð inn hjóleríi gærdagsins (laugardagur), sem var óvenju mikið þá fékk ég skilaboð bæði strax frá kerfinu og líka í töluvpósti um þessi vika væri metvika hjá mér á hjólinu. Nú veit ég ekki hvernig það reiknar út viku (sunnud.-laugar. eða mánd.- sunnud.) en það gæti vel farið svo að ég hjóli líka í dag og bæti þannig metið enn frekar.
11. mars 2013
Bjart í morgun.
Næstum albjart í morgun þegar ég lagði af stað í vinnuna (kl. 7:30) og í fyrsta skipti á þessu ári sem ég er á báðum áttum með hvort þurfi að kveikja ljósin á hjólinu. Ég kveikti ljósin engu að síður en get hlakkað til að stutt er í að þess þurfi ekki og ég get skipt út framljósinu fyrir körfu.
6. mars 2013
Er veturinn seint á ferð eða páskahretið svona snemma?
Veturinn hefur verið einstaklega mildur hér á suðversturhorni landsins, þar til í dag. Fyrir utan nokkuð hvassan vind (vorum í því að elta plöturnar úr gróðurhúsinu þangað til okkur datt loksins í hug að bíða með að setja þær í húsið aftur) þá hefur varla sést snjór þennan vetur. En nú í morgun þegar við vöknuðum var allt orðið hvítt og blindbylur úti.
Ég skildi hjólið eftir heima og tók strætó í vinnuna. Myndin hér að ofan er fengin af vef vegagerðarinnar, ég tók mynd af henni því það er ekki oft sem svo til allir vegir til og frá höfuðborginni eru ófærir í einu.
Elías tók þessa mynd af bílnum þegar hann var mættur í vinnuna í morgun. Hann sagði að það hefði frosið jafnóðum á framrúðunni og þurrkurnar varla haft við út af því.
Það er samt eitthvað pínu heillandi við svona óveður.

1. mars 2013
Febrúar 2013
Með heitari febrúarmánuðum frá því mælingar hófust
Á mynd sést hjólaðar vegalengdir hvern dag í febrúar (fyrstu tvær súlurnar eru reyndar í janúar.
Á mynd sést hjólaðar vegalengdir hvern dag í febrúar (fyrstu tvær súlurnar eru reyndar í janúar.
Febrúar hófst með snjó, þ.e. það sjónaði fyrstu helgina í
febrúar og mánudaginn 4. feb. var erfitt að hjóla vegna færðar. En stígar eru ekki hreinsaðir um helgar sem er bagalegt því það sem af er ári hefur bara snjóað um helgar. En snjórinn var fljótur að bráðna enda rigndi
mikið og hitastigið var almennt um 5°C á morgnana (fór hæst í 8°C)
Ég hjólaði 17 af 20 vinnudögum í vinnuna. Var veik í 2 og enn of slöpp til að hjóla
þann þriðja. Sá að meðaltali 5 á hjóli
hvern dag bæði að morgni og á heimleið.
Flesta sá ég 6. feb eða 8 að morgni og þann 25. feb. á heimleið en þá
voru 10 á ferli á hjóli. Reyndar var ég
þá á ferðinni um kl. 18 og að koma úr Kópavoginum. Samtals sá ég 89 á hjóli að morgni til og 90
seinni partinn sem er svipað og í janúar ef miðað er við dagafjölda í mánuðum.
Heildar vegalengd febrúarmánaðar er 225,65 km, en eins og
áður fer ég stundum í styttri snatt ferðir án þess að taka Garmin með mér og er
það því ekki með í þessari tölu.
31. janúar 2013
Hjólað í janúar 2013
Veðurlega séð var janúar frekar mildur. Hitastigið rétt í kringum frostmarkið, en til að kvarta undan einhverju þá var hann helst til of vindasamur og einn morguninn hjólaði ég ekki í vinnuna vegna roksins en lét skutla mér með hjólið og hjólaði svo heim. Þannig að ég hjólaði alla vinnudaga janúarmánaðar en sleppti einum morgni.
Talning hjólreiðamanna sem ég sé á leið minni til vinnu heldur áfram og ég hef bætt við talningu á heimleiðinni líka. Dóttir mig spurði mig á síðasta ári af hverju ég teldi ekki á heimleiðinni líka og það varð til þess að ég fór að telja þá líka. Ég var alveg viss um að það væru alltaf fleiri á hjóli seinni partinn en annað hefur komið í ljós, og í þessum mánuði hef ég oftar séð fleiri á morgnana eða 13 daga af 22. Og eina skiptið sem ég sá engan á hjóli var einmitt á heimleið 3. janúar en þá var rok og rigning.
Flesta sá ég 22. janúar, þá töldust 18 um morguninn og 11 seinni partinn en það er met þessa mánaðar fyrir báðar ferði og ég sá aldrei færri en 2 að morgni.
Að meðaltali sá ég 6 á hjóli á morgnana og 5 á heimleiðinni. En það má taka það fram að ég tel líka fólk sem teymir hjólin eða situr á bekk með hjólið hjá sér.
Ég hef verið í vandræðum með afturdekkið síðan fyrir jól og það hefur sprungið ansi oft á því, líklega kominn tími til að fá nýtt dekk en nagladekkin eru á sínum fimmta vetri núna. Tvisvar hefur allt loft farið úr afturdekkinu á leið til eða frá vinnu. Í fyrra skiptið kom mér það ekki á óvart og var ég því með nýja slöngu meðferðis (var þegar búin að setja 3 bætur á slönguna). En svo þegar kom gat á nýju slönguna ekki nema viku seinna verð ég að viðurkenna að ég varð frekar pirruð.
Það hefur lítið snjóað það sem af er ári, aðeins
tvisvar hef ég skráð hjá mér snjó á stígum.
Það var 2. janúar og mánudaginn 14. janúar og í bæði skiptin var ég engan
vegin sátt við hreinsunina á stígnum.
Sérstaklega þann 14. þá hafði
snjóað um helgina en engin tæki send út til að hreinsa fyrr en á mánudagsmorgun
og þá höfðu margir troðið niður snjóinn og tækin náðu því ekki upp (eða lögðu
sig ekki fram um það) og þvottabrettastemning á stígnum. Það sem gerði þetta enn meira pirrandi var að
gatan við hliðina á var auð og engan snjó þar að sjá. En Sæbrautin finnst mér ekki spennandi gata
að hjóla á og geri ekki nema í neyð (hefur gerst einu sinni í mars 2010 þegar stígurinn var
algjörlega ófær af snjó).
Hér má sjá súlurit yfir hvern dag hjá mér á hjólinu í janúar. Samtals eru þetta 233 km.
Hér má sjá súlurit yfir hvern dag hjá mér á hjólinu í janúar. Samtals eru þetta 233 km.
22. janúar 2013
Sprungið afturdekk en margir að hjóla og ganga til vinnu.
Það er sprungið á afturdekkinu enn eina ferðina. Ég er nú þegar búin að setja 3 bætur á slönguna og ætla því í dag að setja nýja slöngu í dekkið. Mig grunar þó að dekkið sjálft sé sökudólgurinn þó ég finni ekkert innan í því sem stingst út, en af því götin á slöngunni eru öll á næstum sama stað þá gefur það ansi sterka vísbendingu. Þetta er líka fjórði veturinn sem þessi nagladekk fara undir og þau eru aðeins orðin lúin.
Í morgun byrjaði ég á því að pumpa í afturdekkið og vona að það mundi duga langleiðina í vinnuna því það virtist leka hægt úr dekkinu (pumpaði í dekki í gær áður en ég hjólaði heim og það hélt alla leiðina). Núna hjólaði ég styðstu hugsanlegu leið í vinnuna (eftir Suðurlandsbraut og Laugarvegi) og náði u.þ.b. hálfa leið áður en mesta loftið var farið úr dekkinu.
Á leiðinni sá ég 18 á hjóli þar af 4 drauga sem ég kalla en það eru þeir sem eru ljóslausir og ég kem ekki auga á endurskynsmerki. Langflesti hinna voru í fullum skrúða með ljós bæði framan og aftan og í endurskynsvestum sem að mínu mati eru öfgar í hina áttina, en við virðumst vera svolítið annaðhvort eða hér á þessu landi.
En mér þótti ánægjulegt að sjá hversu margir voru annaðhvort hjólandi eða gangandi. Veðrið í dag er mjög ákjósanlegt, þurrt, 4°c og ekki mikill vindur. Veturinn hefur verið mildur enn sem komið er hér á höfuðborgarsvæðinu.

1. janúar 2013
Hjóla- (og skokk) árið 2012
Á árinu hjólaði ég a.m.k 2.988, en ég skráði ekki niður styttri
snattferðir sem ég fór hjólandi.
Eins og í fyrra þá taldi ég og skráði hjá mér þá hjólreiðamenn sem ég sá á morgnana þegar ég hjólaði til vinnu. Og af því tilefni ætla ég hér að setja inn samantekt um þær tölur. Talning á sér stað milli kl. 7:30 og 8:00 þá virka daga sem ég mæti til vinnu. Yfirleitt hjóla ég meðfram Sæbrautinni frá Holtagörðum og að Hörpu og þaðan upp á Skólavörðustíg.
Mesti fjöldi hjólandi sem ég sá á einum morgni voru 32 þann 16. maí. Þegar kaffitjaldið var við Sæbraut í tilefni átaksins hjólað í vinnuna. Það er nákvæmlega sama og fjöldametið árið 2011.
Að meðaltali sá ég þetta marga hjólreiðamenn á morgnana hvern mánuð:
Janúar 2 á dag (fjöldamet mánaðarins 4)
Febrúar 4 á dag (fjöldamet mánaðarins 9)
Mars 5 á dag (fjöldamet mánaðarins 25)
Apríl 10 á dag (fjöldamet mánaðarins 18)
Maí 18 á dag (fjöldamet mánaðarins 32)
Júní 14 á dag (fjöldamet mánaðarins 18)
Júlí 16 á dag (fjöldamet mánaðarins 27)
Ágúst 14 á dag (fjöldamet mánaðarins 20)
September 9 á dag (fjöldamet mánaðarins 15)
Október 8 á dag (fjöldamet mánaðarins 12)
Nóvember 6 á dag (fjöldamet mánaðarins 12)
Desember 4 á dag (fjöldamet mánaðarins 8)
Bara í janúar kom dagur þar sem ég sá engan hjólreiðamann á leiðinni. Þeir voru 43 vinnudagarnir sem ég hjólaði ekki í vinnuna, þar af hef ég merkt 5 vegna veðurs eða færðar, 4 veikindadagar, einu sinni skokkaði ég í vinnuna og einu sinni var sprungið á afturdekkinu þegar ég fór út í skúr að sækja það, restin af dögunum eru orlof eða annarskonarfrí.
Samtals hjólaði ég 481 ferðir á árinu (þarf af 416 til og frá vinnu en smá skottúrar eru ekki taldir með). Að meðaltali hef ég þá hjólað 6,2 km í hverri ferð.
Síðan var ég eitthvað aðeins að hlaupa líka. Mér finnst ekki eins gaman að hlaupa eins og að hjóla, en samt er góð tilfinning að finna hlaupaþolið bætast með hverju skiptinu sem maður drífur sig út. Á árinu 2012 hljóp ég samtals 131 km. Ég byrjaði hægt og rólega í mars og hljóp svo 5 km í kvennahlaupinu 16. júní og endaði síðan mitt hlaupa ár á því að hlaupa 10 km á 1 klst og 1 mín í Reykjavíkurmaraþoninu þann 18. ágúst og er bara mjög sátt við þann árangur.
Þessar upplýsingar get ég nálgast vegna þess að ég skrái allar mínar hjólaferðir og hlaup inn á síðuna http://www.runkeeper.com/ og hún býður upp á og heldur utan um ýmsar tölur fyrir mann. Með smá reikni kúnstum getur maður svo fundið út hitt og þetta í tengslum við það. Ágætis síða að mínu mati, en ég sakna þó nokkura samantekta sem hægt var að nálgast á hlaup.com en sú síða var tekin niður í ár eftir árás tölvuhakkara.
Hér er svo heildarkílómetrafjöldi á hvern mánuð
Og hér getur að líta heildarkílómetrafjölda á vikudaga og það er ljóst að ég er duglegust að hjóla á mánudögum

Hér er samanburður milli ára á meðaltali fjölda hjólreiðamanna
hvern dag eftir máuðnum
Svo eru hér súlurit tekin úr Runkeeper. Hér táknar hver súla einn dag af árinu og hversu margir kílómetrar eru hjólaðir þann daginn. Af því ég hjóla mest til og frá vinnu þá kemur þessi ákveðna lína inn, en svo stundum skíst maður eitthvað í hádeginu eða eftir vinnu og þá eru súlurnar augljóslega lengri. Og eitthvað fór ég í hjólatúra í fríinu mínu, þó mér finnist ég aldrei gera nóg af því.
Hér er svo heildarkílómetrafjöldi á hvern mánuð
Og hér getur að líta heildarkílómetrafjölda á vikudaga og það er ljóst að ég er duglegust að hjóla á mánudögum
Bæti einni myndinni við í viðbót (3.1.2013). Hér er heildar fjöldi af hjólreiðamönnum sem ég hef komið auga á á leið minni til vinnu í hverjum mánuði bæði árið 2011 og 2012.
20. desember 2012
Jólin eru að koma
Skrítið kominn 20. desember og við ekki enn farin að baka piparkökur fyrir jólin. Nú þegar frumburðurinn er í Háskóla og sú yngri langt komin með menntaskólann og ég að dandalast í tveimur kórum þá er ekki mikill tími aflögu til piparkökugerðar. Kannski við skellum í kökur og hús um helgina - vonandi því það er bara skrítið að vera ekki með piparkökur um jólin.
Í gærkvöldi söng ég á tvennum jólatónleikum. Fyrst kl. 20 í Áskirkju og svo kl. 22 í Dómkirkjunni. Notarleg og hátíðleg stemming á báðum stöðum. Þó fannst mér toppurinn að syngja "Heims um ból" í lokin í Dómkirkjunni haldandi á logandi kerti og kórinn dreifður um kirkjuna.
Svo hlakka ég til að smakka Írsku-jólakökuna á aðfangadag. Kakan er bökuð mánuði fyrir jól og vökvuð með brandy í viku áður en marsípan og sykurhjúpur er svo settur yfir hana. En hér er mynd af kökunni í ár.

9. desember 2012
Leyndarmál
Það kom mér á óvart fyrir 6 vikum hversu erfitt ég átti með að halda leyndarmál sem mér var þá trúað fyrir. Þannig er að kór Áskirkju var að undirbúa og æfa Messias eftir Handel sem flytja átti í Hörpu 5. og 6. desember. En á æfingu fyrir ca. 6 vikum var okkur sagt að við þyrftum að læra Halleluja kórinn utanbókar því við mundum taka þá í gjörningi (svo kallað flash mob) í Kringlunni þann 7. desember.
Þetta er hugmynd frá Sinfóníuhljómsveit Íslands að nokkurskonar jólakorti frá þeim.
En við máttum ekki segja neinum frá því það átti ekki að fréttast út því þá væri tilgangnum ekki náð. Þetta á að líta út fyrir að vera spontant og eins og að spretta fram af tilvlijun.
Og það var hrikalega erfitt að mega ekki segja öllum frá. Ég reyndar sprakk á limminu og sagði Elíasi frá, en líka þurfti ég hann til að hjálpa með við að ná stelpunum okkar í Kringluna á þessum tíma svo þær fengju að upplifa þetta með okkur. Og það tókst. Ég mætti beint úr vinnunni og Elíasi tókst að draga stelpurnar með (þær eru báðar í próflestri og geta hugsað sér eitthvað meira uppbyggjandi en að fara í Kringluna á föstudegi rétt fyrir jól). Það leit nú út fyrir að þau næðu ekki í tíma því umferðin var mjög hæg. Það passaði akkúrat þegar við komum að blómatorginu að kontrabassinn var að byrja að leika fyrstu nóturnar og smám saman tíndust hin hljóðfærin að.
Hér er svo upptaka af þessu:

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
Hjólaárið 2024 - 3.281 km
VEGALENGDIR OG DAGAFJÖLDI Hjólaði samtals 3.281 km á árinu. Hjólaði 1.689 km til og frá vinnu og 1.965 km í aðrar ferðir. Ég hjólaði 208...
-
VEGALENGDIR OG DAGAFJÖLDI Hjólaði samtals 3.281 km á árinu. Hjólaði 1.689 km til og frá vinnu og 1.965 km í aðrar ferðir. Ég hjólaði 208...
-
Bætti inni nýrri slóð hjá hjólabloggurum sem heitir "Hjólaðu maður". Á þeirri síðu er flipi sem heitir "Ástand stíga" og...
-
Hjólaði samtals 323 km í mánuðinum þar af 155 til og frá vinnu. Hjólaði alla nema 2 vinnudaga mánaðarins til vinnu. Hjólaði 168 km á stóra ...