Nú eru kaflaskil í mínu lífi. Í gær lauk 20 ára starfi í fangelsunum á höfuðborgarsvæðinu. Öll þessi ár hef ég hjólað til og frá vinnu, fyrst aðeins á sumrin en svo kom að því að mig langaði ekki að leggja hjólinu þegar kominn var vetur og þá voru keypt nagladekk undir hjólið. Ég fór þá líka á kynningu á vetrarhjólreiðum hjá Fjallahjólaklúbbnum sem var fróðlegt og gott fyrir byrjanda að fara á.
Ég bý nálægt Laugardalnum og var lengst af að vinna niðri í bær. Leiðin til vinnu 5 til 6 km eftir því hvaða leið ég valdi er mjög svo temmileg vegalengd. Um mitt ár 2016 flutti vinnustaðurinn upp á Hólmsheiði og við það lengdist leiðin til vinnu um 100%. Ég hjólaði til að byrja með alla leið. En mér leið aldrei vel á þjóðveginum frá Norðlingaholti og svo eftir Nesjavallaleiðinni svo ég hætti að hjóla alla leið og fékk far frá Olís í Norðlingaholti og svo þegar vetraði hjólaði ég inn í Mjódd og fékk far þaðan.
En allan þennan tíma hef ég talið þá sem ég sé á hjóli og árið 2010 fór ég að skrá það hjá mér ásamt því að ég var farin að nota Garminúr til að halda utan um vegalengdir og slíkt.
Og af því að janúar var að ljúka þá hef ég tekið saman tölur sem ég á yfir janúar mánuði frá 2010 til og með 2018.
Fyrst er hér mynd úr excel-skjalinu mínu, þetta er janúar 2018:
Svo er hér tafla og samantekt yfir fjölda hjólandi sem ég sá á leið minni til vinnu á morgnana. Ég mætti í vinnu kl. 8 og var því á ferðinni snemma morguns.
Og hér eru súlurit yfir það sama, fyrst heildartölur:
og svo meðaltal:
Og að lokum skráning yfir þá virku daga sem ég skildi hjólið eftir heima og hver ástæðan væri fyrir því. Það kom mér verulega á óvart þegar ég fór að hjóla á veturnar hversu fáa daga ég mat það sem svo að veðrið eða færð væri of slæm til að hjóla. Árið 2010 vantar hér inn þar sem ég var ekki farin að skrá hjá mér þá hversvegna hjólið var skilið eftir heima.
1. febrúar 2018
Hjólað í janúar 2018
Í mánuðinum hjólaði ég samtals 201 km, 177 til og frá vinnu og 24 km annað. Var að jafna mig eftir veikindi í 2 daga, einn dag hjólaði ég ekki vegna veðurs og einn dag var ég á bíl af því það var síðasti vinnudagurinn á vinnustað sem ég hef starfað á í 20 ár. Hjólaði því 18 af22 vinnudögum.
Sá að meðaltali 9 aðra á hjóli á leið minni til vinnu.
Svona var aðkoman að hjóli mínu og vinnufélagamíns í lok síðasta dagsins sem ég hjólaði í vinnuna.
Sá að meðaltali 9 aðra á hjóli á leið minni til vinnu.
Svona var aðkoman að hjóli mínu og vinnufélagamíns í lok síðasta dagsins sem ég hjólaði í vinnuna.
Bætt við 6.2.2017:
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
Hjólaárið 2023 - 3.036 km
VEGALENGDIR OG DAGAFJÖLDI Hjólaði samtals 3.036 km á árinu. Hjólaði 1.589 km til og frá vinnu og 1.447 km í aðrar ferðir. Ég hjólaði 203 af ...
-
Var aðeins að skoða mig aftur í tímann og rakst þá á þessa mynd af nóvember kaktusinum í vinnunni hjá mér en hún er tekin árið 2010. Fyr...
-
Mig hefur lengi langað til að prófa að þæfa ull og lét þann draum rætast þessa helgi. Ég átti plötulopa og notaði stærstu prjónana sem ég á....
-
Jamm, í 2 daga gerðumst við Elías smiðir og smíðuðum saman safnkassa fyrir garð- og heimilisúrgang með dyggum stuðningi geitungsins Friðriks...