26. september 2013
Kostnaðarsamt hjólaár.
Þetta ár hefur verið mér óvenju kostnaðarsamt hvað hjólið varðar. Í byrjun árs var alltaf að springa hjá mér og kom í ljós að naglarnir í öðru dekkinu voru farnir að stingast úr vitlausu megin. Keypti ég mér því eitt nýtt nagladekk (hitt þarf að endurnýja líka en vonandi get ég notað það fram á næsta ár).
Svo þarf af og til að stilla og lagfæra bremsur og gírabúnað (en það kann ég ekki að gera sjálf svo þá er farið með hjólið á verkstæði).
Núna í september fékk ég nýjan hnakk, nýja afturgjörð nýjan grískipti að aftan og víra bæði í bremsur og gíra.
Allt þetta hefur kostað mig 65.840 kr og man ég ekki eftir að hafa notað svona mikinn pening í hjólið á einu ári. Þetta er svipað og kostar að kaupa kort í strætó (9 mánaðakort kostar 49.900) en ég fæ meira út úr því að hjóla en að taka strætó og sé því ekki eftir peningnum.
Á næsta ári stefni ég á að kaupa ný sumardekk þar sem þau eru orðin léleg og ég þarf líka að kaupa annað nagladekk en vonandi ekki fyrr en fyrir veturinn 2014-2015.
4. september 2013
Ágúst 2013
Hjólaði samtals 193 km í mánuðinum. Þar af
131 til og frá vinnu og 62 í annarskonar erindi.
Var tvær vikur í orlofi en hjólaði alla hina 12 vinnudagana.
Sá að meðaltali 14 á hjóli á dag til vinnu og 16 á heimleiðinni. Mest taldi ég 25 bæði til og frá vinnu og fæst voru það 8 á báðum leiðum líka.
Var tvær vikur í orlofi en hjólaði alla hina 12 vinnudagana.
Sá að meðaltali 14 á hjóli á dag til vinnu og 16 á heimleiðinni. Mest taldi ég 25 bæði til og frá vinnu og fæst voru það 8 á báðum leiðum líka.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
Hjólað í apríl 2022
Hjólaði samtals 203 km í mánuðinum þar af 122 til og frá vinnu. Hjólaði 15 af 17 vinnudögum mánaðarins, páskarnir voru núna í apríl og tók ...
-
Þetta gróðurhús kom til okkar eftir krókaleiðum. Mér skilst að Minna frænka hafi fengið það gefið fyrir a.m.k. ári síðan. Og í vor ætluðu ...
-
Jamm, í 2 daga gerðumst við Elías smiðir og smíðuðum saman safnkassa fyrir garð- og heimilisúrgang með dyggum stuðningi geitungsins Friðriks...
-
Hr. blogg plataði mig til að taka upp nýtt (og skv. honum) betra blogg þ.e.a.s. nýja útgáfu sem heitir: Blogger beta. Ég get ekki sagt að ...