Hjólaði samtals 247 km í mánuðinum þar af 161 til og frá vinnu. Hjólaði 21 af 23 vinnudögum mánaðarins til vinnu en náði mér í kvefpest og var heima í 2 daga.
Hjólaði 63 km á stóra hjólinu sem er með rafmótor og 184 á venjulega hjólinu.
Sá að meðaltali (á dag þá daga sem ég hjólaði til vinnu): 9 á hjóli, 1 á hlaupahjóli/rafskútu og 13 gangandi.
Hér má sjá samanburð á því hvað ég sá marga á hjóli að meðaltali á morgnana á leið til vinnu
árin 2010, 2012, 2015, 2021 og 2023
Mest sá ég 14 aðra á hjóli og minnst 3. Tölurnar eru farnar að síga upp á við enda er færðin og veðrið að batna, sérstaklega seinni part mánaðarins.
Myndir mánaðarins.
Í upphafi mánaðar var farið að sjá til birtu á morgnana og í lok mánaðar var orðið albjart.
Mynd tekin 3. mars kl. 07:28:
Þetta eru nýju gögnin undir Bústaðarveg rétt við Elliðaárdalinn og þau voru ekki svona lág eins og hin:
Sótti ömmukút í leikskólann:
Svo fallega lagðar rafskútur, gerist ekki svo oft og ég stóðst ekki mátið að stoppa og taka mynd
Framkvæmdir við Grensásveg-Suðurlandsbraut. Búið að fella öll trén sem voru þarna sem gerir umhverfið kaldara og dapurlegra. Vonandi koma einhver tré í staðin fyrir þau sem felld voru þegar framkvæmdum lýkur.