10. nóvember 2008

Fréttaflutningur

Ég eins og margir aðrir var sársvekkt yfir fréttaflutningi af mótmælafundinum á laugardaginn síðasta. Mig hefur langað að skrifa eitthvað um það en ekki gefið mér tíma í það. Í staðinn hef ég sett inn hér slóðir á bloggfærslur það sem fólk lýsir óánægju sinni með fréttaflutninginn, enda var hann til háborinnar skammar.

Tilfinningin er sú að maður geti engum treyst lengur. Hver segir satt? Hverju er sagt frá og hvað skilið eftir? Og þegar Sjónvarpið tók upp á þessum ósóma líka, ja hvernig get ég treyst fréttaflutningi frá þeim eftir þetta?

Kíkið endilega á þessar færslur.

Lára Hanna Einarsdóttir - Hvert er eiginlega hlutverk fjölmiðla?

Helga Vala - Af spunasveini Rúv.

Bloggsíða Ágústs Borgþórs - Mannfjöldinn er fréttin - ekki eggjakastið

Silfur Egils - Mótmælin áðan

Jenný Anna Baldursdóttir - Mótmælum rænt um hábjartan dag

En í gærkvöldi klóraði Sjónvarpið í bakkann og birti réttlátari mynd af mótmælunum og talaði við Hörð Torfa og þann sem stóð fyrir borgarafundinum í Iðnó. Lára Hanna Einarsdóttir hefur sett það myndskeið inn á bloggið hjá sér og þetta er slóðin á færsluna hennar. Afsökunarfrétt, Einar Már og skrílslæti forsætisráðherra

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sæl Bjarney mín. Ég er alveg ótrúleg að gleyma afmælinu þínu...það hefur örugglega ekki gerst áður og gerist vonandi ekki aftur :) Til hamingju með daginn um daginn ;)
Kveðja, Auja.

abelinahulda sagði...

j´ja etta er nú bara leikur

Hjólaárið 2023 - 3.036 km

VEGALENGDIR OG DAGAFJÖLDI Hjólaði samtals 3.036 km á árinu. Hjólaði 1.589 km til og frá vinnu og 1.447 km í aðrar ferðir. Ég hjólaði 203 af ...