Út af kvefi og slappleika hjólaði ég bara í vinnuna síðasta mánudag og svo ekkert það sem eftir var vikunnar.  Þess vegna var einstaklega skemmtilegt að hjóla í vinnuna í morgun.  Veðrið var yndislegt en samt sá ég bara einn annan hjólreiðamann á ferli.
En ég bráðum þarf að yfirfara hjólið og skipta um bremsuklossa á afturbremsunum og fleira.  Líklegast þarf ég að fá mér ný tannhjól og nýja keðju, þetta endist ekki endalaust.