Hjólaði samtals 301 km í mánuðinum þar af 165 til og frá vinnu. Hjólaði alla vinnudaga mánaðarins til vinnu.
Hjólaði 97 km á stóra hjólinu sem er með rafmótor og 204 á venjulega hjólinu.
Sá að meðaltali (á dag þá daga sem ég hjólaði til vinnu): 14 á hjóli, 4 á hlaupahjóli/rafskútu og 15 gangandi.
Mest sá ég 21 hjólandi en minnst 9.
Hér eru svo nokkrar myndir sem teknar voru í mánuðinum:
Veðrlið lék um okkur hér á höfuðborgarsvæðinu í ágúst. Einmuna blíða, bæði logn og sól.
Fór í fyrsta skipti með báða ömmustrákana í hjólatúr á stóra hjólinu. Það var gaman.