15. ágúst 2008

Fréttir




Þá er sumarfríinu að ljúka. Síðasti formlegi dagurinn í dag.






Þetta hefur verið dásamlegt frí. Við fórum til Danmerkur. Þar var haldið brúðkaup sem var einstaklega glæsilegt og skemmtilegt. Daði litlibróðir gekk að eiga Iben og það var bara svo fallegt allt saman.
Eyrún mín var brúðarmeyja ásamt Malthe Kristófer, Abelínu Sögu og Andreu.






Eftir brúðkaupið fór ég með litlu fjölskylduna mína að hitta tengda-fjölskylduna sem hafði leigt sumarhús í tilefni afmælis tengdamömmu.


Þetta hús var ekki langt frá Ringköbing en nær stöndinni hjá litlum bæ sem heitir Söndrevig.


Þaðan fórum við í Lególand og Löveparken sem var mjög gaman. Hrund náði frábærum myndum af dýrunum og sérstaklega ljónunum.


Húsið sjálft var með innisundlaug sem var vel nýtt af yngrihluta hópsins.


Ferðalagið endaði þó ekki eins skemmtilega og það hófst. Við höfðum flogið út með Iceland-Air og vorum ánægð með það flug en heimferðin var bókuð með IcelandExpress.

Tengdafólkið hafði einmitt flogið út með þeim á laugardeginum til Billund og þá var 10 tíma seinkun á fluginu. Það er nákvæmlega það sem við lentum í á leiðinni heim frá Kaupmannahöfn og tengdafólkið líka frá Billund. Við fengum sms þegar við vorum á leið á flugvöllinn kl. 19 um að fluginu seinkaði til kl. 5.55! Við skiluðum af okkur bílaleigubílnum og fórum inn á flugvöllinn til að verða okkur út um upplýsingar en fundum engann sem gat sagt okkur eitthvað af viti. Upplýsingaborðið sagði okkur að tala við SAS en SAS að tala við Express sem var ekki að finna á staðnum.


Við enduðum á því að bóka okkur hótelherbergi á Hilton hótelinu sem er þarna við flugvöllinn og ég a.m.k. náði að sofna svolítið áður en við þurftum aftur að mæta á flugvöllinn. Flugið fór svo ekki í loftið fyrr en að verða hálf sjö.


Þegar við svo loksins, loksins komumst heim var ég bæði undrandi og glöð að sjá hversu vel allar plönturnar mínar hafa dafnað í umsjá Helenu, vinkonu Eyrúnar. Meira að segja paprikurnar voru glansandi og fallegar og 2 orðnar rauðar. En því miður sá ég mér ekki annað fært en að farga þeim plöntum því þær voru morandi í lúsum. Pínulitar glærar lýs út um allt og vefir milli blaða. Jakk, bjakk. En hér er mynd af þeim rétt áður en þær enduðu í endurvinnslutunnunum.

4 ummæli:

BbulgroZ sagði...

Jú leitt að heyra með seinkunina, var með hjartað í buxum að við myndum lenda í því sama með okkar flug, hebbði ekki boðið í það með Írisi og Ívar.

En ég gerði smá tilraun með paprikurana, fjórar fóru út á svalir og aðrar 6 niður til nágrannans. Þær eru út á svalirnar fóru voru framlágar og en eftir vökvun urðu þær í lagi, nágrannagæslan skilaði samt betri árangri : )

BbulgroZ sagði...

Hurru, það væri líka gaman að hittast og skoða myndir frá Hrund og sonna..á eftir að sjá veisluna á stafrænu formi og heyra líka frá ykkur hvernig framhaldið var ofl...

Refsarinn sagði...

Leitt með lýsnar, hebbdir kannski átt að hringja í lífræðinginn þinn. Ef þú hefðir farið með plönturnar inn í sturtu og bunað heitu vatni (eins heitu og þú færð úr krananum) yfir alltsaman. Þannig drepur þú allar lýs en plantan þolir álagið nokkuð lengi.

Nafnlaus sagði...

Sæl og gaman að fá þig aftur í bloggheima :) Ég get ímyndað mér að það hafi verið leiðinlegt og jafnvel óþolandi þessi seinkun á flugi...
Hafðu það gott.

Auður.

Hjólaárið 2023 - 3.036 km

VEGALENGDIR OG DAGAFJÖLDI Hjólaði samtals 3.036 km á árinu. Hjólaði 1.589 km til og frá vinnu og 1.447 km í aðrar ferðir. Ég hjólaði 203 af ...