Það er óskaplega gott að lesa svolítið þegar komið er upp í rúm á kvöldin, svona rétt á meðan sængin er að hitna.
Stundum vantar eitthvað að lesa og þá er farið í bókahilluna og reynt að finna eitthvað lesefni.
Þetta átti sér einmitt stað í síðustu viku. Þá er alltaf spurningin hvaða bók á að velja. Bækurnar í bókaskápnum eru mest barna- og unglingabækur, margar mjög góðar en flestar búið að lesa oftar en tvisvar eða þrisvar eins og t.d. Ronja ræningjadóttir og Bróðir minn Ljónshjarta.
En nú fannst bók sem ekki hafði verið lesin áður. Hún ber titilinn "Áslákur í álögum" eftir Dóra Jónsson. Bókin er gefin út 1952 og er saga af hortugum og frekum borgarsták sem fer í sveitina til afa og ömmu og verður þar að manni. Sveitarómantíkin er allsráðandi og lesandinn kemst að því að allir hafa gott af því að fara í sveitina og læra þar á lífið. En allra skemmtilegast er þó texti aftan á bókinni, þar stendur:
"Þetta er óvenju góð unglingasaga! Jafnaldrar Láka og Línu munu lesa hana í spretti og hrópa einum rómi: "Mættum við fá meira að heyra!""
23. janúar 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Hjólaárið 2023 - 3.036 km
VEGALENGDIR OG DAGAFJÖLDI Hjólaði samtals 3.036 km á árinu. Hjólaði 1.589 km til og frá vinnu og 1.447 km í aðrar ferðir. Ég hjólaði 203 af ...
-
Hjólaði samtals 300 km í mánuðinum þar af 132 til og frá vinnu. Hjólaði 15 af 17 vinnudögum mánaðarins til vinnu, var 5 daga í orlofi. Hjó...
-
Mig hefur lengi langað til að prófa að þæfa ull og lét þann draum rætast þessa helgi. Ég átti plötulopa og notaði stærstu prjónana sem ég á....
-
Það hefur lengi verið á óskalistanum hjá mér að hjóla að álverinu í Straumsvík og í dag lét ég loksins verða af því. Veðrið var mjög fínt t...
1 ummæli:
Þeir kunnu nú að búa til slagorðin í þá daga.
Skrifa ummæli