Eitthvað virðist hjólreiðamönnum hafa fækkað á morgnanna. Sé ekki nema 2-3 á leið minni í vinnuna. Um miðja síðustu viku sást til 5. En almennt eru fleiri för í snjónum svo við erum að á öllum tíma dagsins.
En mér gengur ljómandi vel að hjóla. Á í raun erfitt með að trúa því að það sé ekki meira mál að hjóla á veturnar. Veðrið hefur auðvitað leikið við mig þ.e. lítið er um blástur. Færðin misjöfn en að meðaltali er ég ekki nema 5 mín lengur í vinnuna núna heldur en á sumrin.
Svo er gaman að því að benda fólki á átak sem er að hefjast sem kallast lífshlaupið. Þetta er fyrirtækja- og einstaklingskeppni sem stendur yfir 2. - 24 febrúar og felst í því að hreyfa sig (skiptir ekki máli hvernig eða hvenær) í 30 mín samanlagt (þarf ekkert frekar að vera allt í einu) á dag.
28. janúar 2009
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Hjólaárið 2024 - 3.281 km
VEGALENGDIR OG DAGAFJÖLDI Hjólaði samtals 3.281 km á árinu. Hjólaði 1.689 km til og frá vinnu og 1.965 km í aðrar ferðir. Ég hjólaði 208...
-
Ég skal viðurkenna það að mér þykir óskaplega gaman að fá athugasemdir við bloggið mitt og bíð spennt eftir hverja nýja færslu að einhver sk...
-
Mig langar að biðja ykkur um að deila með mér uppskriftum að einföldum hversdagsmat. Mín sérgrein er: Egg á brauði. Hráefni: Egg, brauð, ost...
-
Ég ætla að sýna ykkur kastalann sem mig langar svo í. Þetta er svona ævintýrakastali með kastalasýki, turnum, og allskonar skúmaskotum. Hann...
1 ummæli:
jamm samála þér þarna systir góð. það er töluvert auðveldara að hjóla en maður heldur. Mesta erfiðið er að koma sér af stað.
Skrifa ummæli