Í mánuðinum hjólaði ég samtals 236 km, þar af 185 km til og frá vinnu og 61 km annað.
Hjólaði 18 af 20 vinnudögum mánaðarins til vinnu, það var starfsdagur í vinnunni og þá skildi ég hjólið eftir þar og einn dag hjólaði ég ekki vegna veðurs. Febrúar var efriður veðurlega séð þar sem maður er orðin ansi þreyttur á vetrinum.
Sá að meðaltali 4 á hjóli á dag til og frá vinnu. Mest taldi ég 8 til vinnu og 10 á heimleiðinni.
Meðalferðahraði í mánuðinum var 13,4 km/klst til vinnu og 12,4 km/klst heim. Og meðal ferðatími var 21 mín til vinnu og 23 mín heim, eins og í janúar.
Þessi mynd sýnir hvernig ég stend í samanburði við aðra sem nota endomondo. Það eru augljóslega færri sem hlaupa, gana og/eða hjóla á þessum árstíma.
Og þetta er bara til gamans:
.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Hjólaárið 2024 - 3.281 km
VEGALENGDIR OG DAGAFJÖLDI Hjólaði samtals 3.281 km á árinu. Hjólaði 1.689 km til og frá vinnu og 1.965 km í aðrar ferðir. Ég hjólaði 208...
-
Ég skal viðurkenna það að mér þykir óskaplega gaman að fá athugasemdir við bloggið mitt og bíð spennt eftir hverja nýja færslu að einhver sk...
-
Mig langar að biðja ykkur um að deila með mér uppskriftum að einföldum hversdagsmat. Mín sérgrein er: Egg á brauði. Hráefni: Egg, brauð, ost...
-
Ég var að enda við að senda kvörtunarbréf til Strætó. Þeir voru enn og aftur að breyta leiðarkerfinu og tóku við það í burtu eina kostinn vi...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli