

Flogið til Egilsstaða og þaðan farið beint að skoða Kárahnjúkavirkjunina. Landslagið þarna er hrikalegt og fallegt í senn. En ekki skil ég hvernig starfsmenn og fjölskyldur þeirra hafa farið að því að halda geðheilsu þarna uppi á veturnar. Vinnubúðirnar eru á afskaplega hráslagalegu og drungalegu svæði. Myndin er af stærstu stíflunni af þremur. Kárahnjúkurinn sjálfur er til vinstri á myndinni og glöggir menn sjá tröllkerlingu sem hefur dagað uppi á leið í hellinn sinn.
býr og bauð hann í kvöldmat. Það var ekið yfir Oddskarð í svarta þoku og mikill léttir að koma inn í göngin, sem eru einbreið en vel upplýst.
Mikið vildi ég óska að svona veður eins og var síðustu 2 vikurnar væri venjulegt sumarveður á Íslandinu okkar. Því hvað er dásamlegra en sól og hiti.
Þetta var alveg yndislegur hjólatúr sem tók u.þ.b. klst með stoppum hér og þar til að hvíla sig og njóta veðurblíðunnar.


Nú fylgist maður grannt með þessari síðu.


Og svo í dag.



VEGALENGDIR OG DAGAFJÖLDI Hjólaði samtals 3.281 km á árinu. Hjólaði 1.689 km til og frá vinnu og 1.965 km í aðrar ferðir. Ég hjólaði 208...